Fara í meginmál
Motto
Til baka á forsíðuna

Persónuvernd

Þessi síða skýrir hvernig Novamedia ehf. (kt. 540606-2260), sem rekur Mottó, vinnur persónuupplýsingar — bæði fyrir fyrirtæki sem nota kerfið og fyrir fólkið sem er í klúbbunum þeirra.

Uppfært 23. ágú. 2026

Tvenn hlutverk

Þegar fyrirtæki notar Mottó til að halda vildarklúbb er fyrirtækið ábyrgðaraðili gagnanna og Novamedia ehf. vinnsluaðili. Mottó vinnur gögnin eingöngu eftir fyrirmælum fyrirtækisins og notar þau ekki í eigin markaðssetningu. Þegar Mottó safnar upplýsingum um sína eigin viðskiptavini — nýskráningar, reikninga, þjónustubeiðnir — er Novamedia ehf. ábyrgðaraðili.

Hvaða gögn eru unnin

Fyrir klúbbmeðlimi: nafn, netfang, símanúmer, staður, afmælisdagur (dagur og mánuður), áhugasvið, samþykki og saga þess, skilaboð sem hafa verið send, opnanir og smellir, og pantanir þegar netverslun er tengd. Fyrir notendur kerfisins: nafn, netfang, hlutverk, innskráningar og aðgerðir í aðgerðaskrá.

Samþykki og lagagrundvöllur

Markaðsskilaboð eru aðeins send til fólks sem hefur veitt samþykki. Hvert samþykki er vistað með dagsetningu, rás, uppruna og þeim texta sem var samþykktur. Afskráning er alltaf í boði í hverjum skilaboðum og á mitt.motto.is. Þjónustuskilaboð, reikningar og öryggistilkynningar byggja á samningi eða lögmætum hagsmunum.

Varðveisla

Klúbbgögn eru varðveitt á meðan fyrirtækið er í rekstri hjá Mottó og í 90 daga eftir að þjónustu er sagt upp, svo hægt sé að flytja þau eða endurheimta. Afskráðir tengiliðir eru geymdir í suppression-lista svo þeir fái ekki fleiri skilaboð. Sendingarskrár eru varðveittar í 90 daga, aðgerðaskrá í 24 mánuði, og reikningagögn eins lengi og bókhaldslög krefjast.

Vinnsluaðilar

Mottó notar Supabase (gagnagrunnur og auðkenning), SMTP2GO (tölvupóstur), íslenskan SMS-þjónustuaðila, og AI-þjónustuaðila fyrir textatillögur. Öll vinnsla er innan EES eða undir samsvarandi vernd. Fullur listi vinnsluaðila er hluti af vinnslusamningnum.

Réttindi þín

Þú átt rétt á upplýsingum um gögnin þín, afriti, leiðréttingu, eyðingu og að draga samþykki til baka. Ef þú ert í klúbbi hjá fyrirtæki getur þú gert þetta sjálf á mitt.motto.is, eða beint erindinu til fyrirtækisins. Mottó svarar innan mánaðar.

Vefkökur

Mottó notar aðeins nauðsynlegar vefkökur: innskráningarlotu, tungumál og öryggistákn. Engar auglýsingakökur og engin þriðja aðila greining á markaðssíðunni. Mælipixillinn sem fyrirtæki geta sett á sinn vef mælir sölu úr herferðum og notar ekki auðkenni þvert á vefsíður.

Öryggi

Gögn eru dulkóðuð í flutningi og í hvíld. Aðgangur er hlutverkabundinn, hvert fyrirtæki er aðskilið á gagnagrunnsstigi með row level security, og allar aðgerðir starfsmanna Mottó eru skráðar. Starfsmenn sjá aðeins samtölur nema fyrirtækið veiti tímabundinn þjónustuaðgang.

Fyrirspurnir

Sendu okkur línu á motto@motto.is. Mottó er rekið af Novamedia ehf., kt. 540606-2260. Nánar á novamedia.is.